Lyngholt 10, 190 Vogar
Tilboð
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
198 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
88.190.000
Fasteignamat
73.050.000

Hraunhamar fasteignasala og Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 [email protected] kynna : Glæsilegt nýlegt 198,9m2 einbýlishús, (byggt 2022) þar af er innbyggður bílskúr 32,3m2, á frábærum stað við Lyngholt 10, 190 Vogum Húsið stendur innst í botnlanga með góðri aðkomu og næg bílastæði. Húsið er laust strax og til sýnis. 

Hiti í öllum gólfum og þráðlaus hitastýring í hverju rými. 

Húsið er á einni hæð og er fullbúið og vel skipulagt. Íbúðin skiptist í flísalagða rúmgóða forstofu með flottum fataskáp. Falleg gestasnyrtingu með sturtuklefa, ljósri innréttingu og upphengdu klósetti, gólf og veggir eru flísalögð. Eldhús er í einu rúmgóðu rými sem stofan, borðstofa og sjónvarpsholi. Eldhúsið er bjart með fallegri ljósri innréttingu, eyju, góðum tækjum, innbyggðum ísskáp og frystiskáp. Eldhúsiðð er við stofuýmið. Útgengt er út á verönd úr eldhúsi / stofu. Stofan er björt og rúmgóð, parket á gólfum. Svefnherbegin eru fjögur og öll rúmgóð. Þrjú barnaherbergi með fataskáp og parket á gólfum. Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með góðum fataskáp. Innangengt er úr hjónaherbergi og inn á baðherbergi. Mjög fallegt og rúmgott baðherbergi er með baðkari og sturtu, ljósri innréttingu og flísalagt gólf og veggi að sturtu. Þvottaherbergi er með góðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, vinnuborði með vask og góðu skápaplássi, flísar á gólfi. 

Bílskúrinn er 32,3 fm, stór og björt. Geymsla / herbergi er inn af bílgeymslu sem er bjart og með parket á gólfi.

Út frá stofu er útgengt út á verönd og þar hefur verið lagt ídráttarrör fyrir rafmagni og vatni fyrri heitan pott.

Nánari lýsing:
Húsið er fullbúið að innan og utan en er á byggingarstigi 3, matsstig 8, lokaúttekt hefur farið fram en ekki búið að ská hana rétt inn. 
 Rafmagnslagnir og tafla eru fullfrágengnar ásamt öllum tenglum og ljós rofum. Harðparket er á gólfum hússins. 

Húsið er vel einangrað og klætt með lituðu aluzink, viðhaldslitlu efni.

Lóðin er nánast fullfrágengin að mestu. Bílaplan er hellulagt með snjóbræðslukerfi, en ekki tengt. Restin af lóðinni er þannig frá gengið að kaupandi ákveður sjálfur hvort hann vill hafa gras, möl eða timbur á lóðinni, en öll undirbúningsvinna er búin.

Frá baklóð er opið að fallegri náttúrunni, þar er hraunið með mosanum einsog það gerist fallegast. 

Þetta er áhugaverð nýleg eign sem vert er að skoða. Fjölskylduhús þar sem öll rými eru rúmgóð. 

Nánari uppl gefa Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 [email protected]
Glódís Helgadóttir s. 659-0510 [email protected] 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.